Besta litla gistiheimilið á Norðurlandi

Skagafjörður býður uppá ótal áhugaverða valkosti fyrir ferðamenn, jafnt sumar sem vetur. Hér að neðan er listað upp fátt eitt af því sem í boði er, en

Skagafjörður - Skemmtilegur í fríinu

Skagafjörður býður uppá ótal áhugaverða valkosti fyrir ferðamenn, jafnt sumar sem vetur. Hér að neðan er listað upp fátt eitt af því sem í boði er, en Upplýsingamiðstöðin í Varmahlíð (s: 455-6161) veitir ýtarlegri leiðsögn um skagfirska afþreyingu. Einnig má, á ferðavefsíðunum  Visitskagafjordur.is og Northwest.is, fá  gott yfirlit valkosta fyrir ferðafólk.

View from Island DrangeyÍ Skagafirði má m.a. finna:


Horse riding in SkagafjordurHESTAFERÐIR OG HESTASÝNINGAR
Hestamennska skipar stóran sess í Skagafirði, þar sem m.a. er boðið upp á hestaleigur, reiðkennslu, hestaferðir og hestasýningar. Hestatengdir viðburðir njóta töluverðra vinsælda, s.s. sýningin Tekið til kostanna og Laufskálarétt, auk þess sem Landsmót hestamanna er reglulega haldið á Vindheimamelum. Hestatengda afþreyingu má t.d. finna á Varmalæk, Lýtingstöðum, Flugumýri, og hjá Topphestum ogHestasport.

GOLF
Tveir níu holu golfvellir eru í Skagafirði; Hlíðarendavöllur ofan við Sauðárkrók (Golfklúbbur Sauðárkróks, s: 453-5075) er einn lengsti níu holu golfvöllur landsins, og golfvöllurinn í Lónkoti í Sléttuhlíð (s: 453-7432) norðan Hofsóss býður uppá einstakt útsýni yfir eyjarnar á Skagafirði.

FLÚÐASIGLINGAR
Hjá þeim sem vilja njóta spennu og skemmtunar í tilkomumikilli náttúru er vinsælt að fara í siglingu niður skagfirsku jökulárnar, en sú austari er af mörgum talin ein besta flúðasiglingaá Evrópu. Tvö fyrirtæki í Skagafirði hafa um árabil sérhæft sig í flúðasiglingum; River rafting in SkagafjordurBakkaflöt og Ævintýraferðir.

GÖNGUFERÐIR
Margir góðir valkostir eru til lengri og styttri gönguferða í Skagafirði. Nokkur göngukort hafa verið gefin út, og má sjá framhlið tveggja þeirra HÉR (Ath: Á bakhlið eru ýtarlegar leiðarlýsingar). Einnig hafa verið gefin út kort fyrir útivistarparadísina á Tröllaskaga (fjallgarðurinn milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar). Kortin fást m.a. í Upplýsingamiðstöðinni í Varmahlíð. Nokkrar vinsælar gönguleiðir hafa verið stikaðar, s.s:

  • Mælifellshnjúkur (1.138 m), sunnarlega í Skagafirði
  • Tindastóll (989 m) norðan Sauðárkróks
  • Hólabyrða (1.244 m) og Gvendarskál (575 m) ofan Hóla í Hjaldadal
  • Molduxi (706 m) vestan Sauðárkróks

Hiking in Merkigil CanyonAuk þessa má nefna gönguleiðir um Merkigil, Austurdal, Glerhallarvík og Bólugil. Á heimasíðuFerðafélags Skagfirðinga má finna upplýsingar um skipulagðar gönguferðir og fjallaskála í óbyggðum.

Nánari upplýsingar fást hjá Upplýsingamiðstöð ferðamála í Varmahlíð (Sími 455 6161   Netfang:upplysingar@skagafjordur.is), og á Visitskagafjordur.is(afþreyingartengill)

Ferðabæklingurinn Skagafjörður-Skemmtilegur í fríinu, er fáanlegur í Upplýsingamiðstöðinni í Varmahlíð, en líka í pdf-formi HÉR á netinu.

Mynd augnabliksins

island_drangey_2.jpg
Myndaalbúm

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf